Tveggja herbergja hús. Hlýlegt og opið rými – tilvalið fyrir fjölskylduna eða vinahópinn.
Vel útbúið eldhús og rými sem skapað er fyrir góðar minningar. Borðstofuborð fyrir 6
manns í rúmgóðri stofu þar sem hægt er að taka eina skák eða grípa í spil, hlusta á
tónlist eða hljóðbók, eða einfaldlega njóta kyrrðarinnar.
Gistingin er án þjónustu en við bjóðum upp á morgunverðarkörfu eða heimagerðar
máltíðir eftir sérpöntun. Vinsamlegast látið okkur vita með góðum fyrirvara.




















