Frá búskap til nýrra tíma
Í áratugi var Eyri hefðbundinn sveitabær með kýr, kindur, hesta og hænsni. Móðurafi
Sverris rak búið og frá sex til sextán ára var Sverrir hér í sveit og segja má að hann
þekki hverja þúfu og hól. Hann man enn eftir að hlaupa á eftir kúnum, leita að þeim
Djúpugróf í vondum veðrum og ganga upp á Eyrafjall til að horfa yfir fjörðinn.
Búskapur hefur ekki verið stundaður á Eyri um nokkurt skeið. Þegar tækifæri gafst til að
kaupa jörðina tóku Sverrir og Ólöf því sem þýðingamikilli áskorun. Fljótlega hófu þau að
móta nýjan kafla fyrir Eyri, endurbyggja eldri hús og skapa stað þar sem gestir geta
upplifað kyrrðina, landslagið og þá tilfinningu sem myndast þegar tíminn hægi á sér.
Mörg upprunalegu húsanna hafa nú fengið nýtt hlutverk og þó enn sé ýmislegt óunnið.
Eyri er í stöðugri þróun sem er drifin áfram af umhyggju, forvitni og djúpri tengingu við
landið.
Eyri er fjölskyldurekið og byggir á samvinnu og einlægum áhuga á framtíðinni. Allir sem
koma að verkefninu hlakka til að taka þátt í áframhaldandi uppbyggingu svæðisins með
það að markmiði að gera dvöl hvers gests eins ánægjulega, persónulega og
eftirminnilega og mögulegt er.
Saga Eyrar heldur áfram – nýr kafli er bara rétt að hefjast.