Skapandi rými
Eyri Atelier er litrík vinnustofa þar sem Ólöf finnur ró og gleði í amstri hversdagsins. Ólöf er grafískur hönnuður og rak hönnunar- og prentsmiðjuna Reykjavík Letterpress í 13 ár. Skemman var áður notuð sem viðgerðaraðstaða fyrir landbúnaðarvélar og bíla en í dag er þar töfrandi aðstaða með mikinn sjarma. Þegar ákveðið var að breyta húsinu í skapandi rými var ytra byrðið einangrað og klætt en innveggirnir látnir halda hráu yfirbragði sínu til að endurspegla sögu hússins. Gluggum var einnig bætt við til að hleypa inn náttúrulegri birtu.
Veggirnir eru þaktir prentverkum sem safnast hafa í gegnum árin, að mestu frá letterpress-vinum víðs vegar að úr heiminum. Ólöf er hluti af Letterpress Workers (LPW), alþjóðlegu samfélagi prentara og hönnuða sem hittast árlega í Mílanó til að vinna, prenta og deila hugmyndum. Það er draumur Ólafar að bjóða meðlimum þessa hóps í heimsókn á Eyri og halda vinnustofur þar sem gestir geta upplifað allt mögulegt sem tengist prentferlinu. Eitt af framtíðarverkefnum er að þróa náttúrulegt blek og kanna umhverfisvænar prentunaraðferðir með hráefnum sem sótt eru í nærumhverfið. Á þann hátt verður Eyri Atelier eins konar tilraunastofa þar sem slík “nornaseyði” verða útbúin af kostgæfni.
Gestum er velkomið að bóka heimsóknir á vinnustofuna eða sérsniðið námskeið þar sem þeir geta kynnst fjölbreyttum prentaðferðum, búið til náttúrulegt blek og leikið sér með skapandi hugmyndir.