KYRRÐ OG RÓ Í KJÓS

Aðeins um hálftíma frá Reykjavík

Notalegt og bjart rými með eldunaraðstöðu, þægilegu sófasvæði og borðkrók fyrir tvo.

Stórir gluggar færa gesti nær náttúrunni og bjóða upp á fjölbreytt og síbreytilegt útsýni.

Tveggja herbergja hús. Hlýlegt og opið rými – tilvalið fyrir fjölskylduna eða vinahópinn.

Vel útbúið eldhús og rými sem skapað er fyrir góðar minningar.

Upplifðu einstakan karakter og hlýju í þessu gamla & fallega uppgerðu húsi. Rými sem er tilvalið fyrir stórar fjölskyldur eða hópa

KYRRÐ OG RÓ Í KJÓS

Frá Eyri liggja hlykkjóttir stígar meðfram litlum læk og upp með hlíðinni að fossinum fyrir ofan bæinn. Þaðan liggur leiðin áfram að litlu vatni þar sem víðáttumikil sýn og kyrrlát fegurð skapa næstum óraunverulega stemningu. Annar stígur fylgir ströndinni í átt að Hvalfjarðareyri, þar sem lítill viti hefur lengi vísað sjófarendum leið um fjörðinn.

Í nágrenninu er margt að sjá og skoða – allt frá sjóböðunum í Hvammsvík til sundlauga á Kjalarnesi og í Hvalfjarðarsveit. Hægt er að ganga að Glym, rölta um skóginn við Fossá eða koma við á Hálsi og næla sér í úrvals nautakjöt úr heimabyggð áður en haldið er til baka til að elda og njóta saman.

Á Eyri farm finnur þú

HÚS
0
VEISLUSAL
0
ATELIER
0
FOSS
0

Eyri Farm - Frá búskap til nýrra tíma

Í áratugi var Eyri hefðbundinn sveitabær með kýr, kindur, hesta og hænsni. Móðurafi Sverris rak búið og frá sex til sextán ára var Sverrir hér í sveit og segja má að hann þekki hverja þúfu og hól. Hann man enn eftir að hlaupa á eftir kúnum, leita að þeim Djúpugróf í vondum veðrum og ganga upp á Eyrafjall til að horfa yfir fjörðinn. Búskapur hefur ekki verið stundaður á Eyri um nokkurt skeið. Þegar tækifæri gafst til að kaupa jörðina tóku Sverrir og Ólöf því sem þýðingamikilli áskorun. Fljótlega hófu þau að móta nýjan kafla fyrir Eyri, endurbyggja eldri hús og skapa stað þar sem gestir geta upplifað kyrrðina, landslagið og þá tilfinningu sem myndast þegar tíminn hægi á sér.